*Sveitaskutlan*

Stína litla Birgis

08.11.2007 10:03:46 / skutla

Leikskólafræðin er ekki uppáhaldið mitt.........

Einn enn fimmtudagurinn kominn... skil bara ekki hvað varð um hina daga vikunnar!!! En ef ég hugsa um öll verkefnin sem ég er búin að skila í þessari viku þá veit ég um dagana.. þeir eru í þessum verkefnum mínum ;)

Búið að vera svo mikið að gera þessa viku að ég hef valla haft tíma til að anda.. mætti segja að ég hafi nánast setið í skólanum að læra frá klukkan 11 á mánudagsmorgni til 4 í gær, rétt skrap heim til að sofa á milli!! Svo þegar lærdómurinn var búinn í gær þá tók ræktin við.. við eydís fórum í Body Jam og það er klárt mál að við missum ekki af þeim tímum oftar ;)

Dagurinn í dag er einning vel skipulagður.. Skóli, smá vinna, ræktin, æfing og tónleikar :D Ég elska þegar það er mikið að gera ef það er ekki bara lærdómur ;) Allveg komin með nóg af þessum skóla í bili sko, en er samt ekkert að gefast upp ef ykkur datt það í hug ;)

Helgin er ekkert plönuð.. það er spurning hvort ég haldi mig bara á Akureyrinni, kíki í sveitina eða skutlist jafnvel á Krókinn ;) hef ekki farið á Krókinn SVO lengi...

3 vikur eftir af skólanum og svo próf 8| Get ekki beðið eftir að komast í jólafrí, ætla bara að slappa af og gera ekki neitt ;) nema kannski vinna aðeins og kannski hjálpa mömmu örlítið við jólaundirbúninginn þar sem hún er ekki búin fyrr en 20 des en ég 5 des :haha:

Held ég hafi bara ekkert skemmtilegt að segja ykkur þessa dagana..

Kristín kveður og er voða tóm í hausnum eitthvað :$

Jóhanna G skrifaði
ég held að málið sé róleg helgi á Akureyrinni;) taka svona kósý helgi einu sinni... höfum ekki verið báðar hérna í íbúðinni um helgi frá því við fluttum inn heheh
Ásbjörg skrifaði
Sæl Ég fer í jólafrí 19 des þannig að við getum gert eitthvað skemmtilegt saman. Og þann dag er ég líka hætt á Furukoti eða fer í ársleyfi frá áramótum :) Þarf að segja þer margt skemmtilegt hehe
mamma skrifaði
Ævinlega velkomin heim :) Alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast þar. Sjáumst.....
Guðbjörg skrifaði
Hvenar á að kíkja á Skagann?? Ert allavega alltaf velkomin:)
Júlia Sigurðardóttir skrifaði
Hæ sveitaskutla ha ha ha er mikið að gera;) humm hver sagði að það væri ekkert að gera í náminu ha ha ha;)
asta skrifaði
Skelltu tér bara til mín ;)
María Dröfn,, skrifaði
jæja langt síðan ég hef gefið mér tíma í að kvitta hérna.. hvað segiru er námið farið að þyngjast eitthvað? það var líka kominn tími til, hehe;) en gaman að sjá þig í smá á fimmtudaginn.. hefði líka verið enn skemmtilegra að djamma með þér á paallla en það verður bara næst, enda skildist mér heilsan þín ekkert hafa verið sem best þar eða? :D
Berglind Ósk skrifaði
hellú sæta, langaði bara til að kvitta hjá þér, kíki alltaf reglulega á þig stelpa :D en dí já ég get ekki beðið eftir jólafríinu og jólunum, verður æðislegt :D en já vona að ég fari nú eitthvað að hitta þig mús;)
Jóhanna Guðrún skrifaði
NÝTT BLOGG TAKK FYRIR!!!!!!
María skrifaði
miss jú stelpa! ekkert smá gaman að rekast á þig þarna um daginn :D

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.