Helgin var einstaklega róleg og góð.. búin að hugsa mikið og komist að þeirri niðurstöðu að mig langar klárlega ekki að vera lengur á Íslandi.. Komin með nóg að öllu þessu rugli í bili!! Væri ágætt að geta farið út í svona eins og ár, koma aftur heim og byrja upp á nýtt
Vildi að ég gæti bakkað um eitt ár... fyrir ári var Harpa í heimsókn hjá mér í Lúxemborg og það var æði
Vildi allveg getað fengið þann tíma aftur.. þá var ég líka ný búin að kaupa ferð til Parísar og Eva Dögg var ný búin að kaupa ferð út til mín... vildi að það væri jafn mikið að gerast hjá mér núna!!! En hvað er núna... verkefni, verkefni, verkefni og vesen.....
Langar í sveitina eða á Krókinn til Evu næstu helgi en þarf að gera 40% verkefni sem ég fæ í hendurnar á fimmtudaginn og þarf að skila á mánudaginn... spurning hvort ég læri eitthvað ef ég fer út fyrir Akureyrina!!
Þarf endilega að fara að redda mér vinnu í jólafríinu.. er í fríi frá 5.des til 9.jan!! Ekki slæmt það, en ég held að ég veðri orðin klikkuð á að hafa ekkert að gera allan þennan tíma.... við skulum allavega vona að ég verði ekki að læra fyrir upptökupróf, því ég ætla að ná öllu, og fer létt með það
Sóley Sif var hérna hjá mér í gærkvöldi og hún var svo mikið æði að ég vildi eiginlega ekki skila henni aftur, en ég er ekki viss um að foreldrarnir hefðu samþykkt það
Hún var mjög góð og svaf bara mestallan tímann hjá okkur Eydísi, vaknaði svona líka í góðu skapi um 4 leitið í nótt, og þá var annsi gott að geta skilað henni og haldið áfram að sofa
Hehe.. ekki það að ég hefði sko allveg getað vakað með henni í alla nótt hún er svo mikið æði
Við eydís eyddum laugardeginu í það að finna afmælisgjöf á Viktoríu litlu frænku hennar og innanhúsíþróttaskó á Eydísi sjálfa ...verkefnin tókust bæði svo nú er það bara að fara og kaupa kort í ræktina og standa sig
Ég held að danmerkurferðin sé dottin út af dagskránni þessa dagana... er ekki allveg til í að fara ein þar sem Svanhildur er að fara að vinna svo mikið!!! Þá er bara betra að reyna að vinna þessa viku og geta eytt meiru þegar ég fer með Evu og Matthildi í Mars
Jæja ...ætla held ég bara að fara að koma mér að sofa, það er svo mikið að gera hjá mér á morgun, eða þannig!!! Kannski að maður reyni að byrja á einhverju nýju verkefni þar sem ég kláraði eitt í dag
Ég einhvernveginn get bara gert eitt verkefni í einu, næsta veðrur bara að bíða þanngað til að hitta er búið!!! Ef ég byrja á tveimur ritgerðum í einu þá fer bara allt að hringsnúast í hausnum á mér....
Kristín kveður og er allveg svaka upptekin þessa daga í því að gera ekki neitt!!!!!!!!!!!!!